öll ég


fyrirgefðu að ég sjái ekki sólina eins og þú.
fyrirgefðu að ég sé öðruvísi.
fyrirgefðu að ég taki ekki þátt í neinu.
ég er að reyna.
ég er föst í myrkrinu, kemst ekki burt.
fyrirgefðu að ég dregst saman þegar þú snertir mig.
fyrirgefðu að ég sé ekki eins og þú.
fyrirgefðu að mér líður alltaf illa.
ég er að reyna.
fyrirgefðu að ég sef ekki bara græt.
fyrirgefðu að ég afsaki mig, ég vil bara ekki
að þú vitir sannleikann.
fyrirgefðu að ég láti þig hlusta á mig
þegar það kemur ekkert nema rusl út.
fyrirgefðu að ég ljúgi, ég kann bara ekki að fela mig öðruvísi.
svo lengi sem ég er einhver önnur,
þá þarf ég ekki að vera ég sjálf.
fólk vill ekki þekkja það sem það ekki skilur...
það skilur mig enginn.
enn ég reyni að hanga í leiknum.

þks  
þórdís katla sævarsdóttir
1983 - ...


Ljóð eftir þórdísi

save tonight.
til hvers
hann
you are all within.
lost
kill me.
inn í mér.
reyni.
hún er sem eitur.
how he does things.
my baby
öll ég
Aðeins til þín
augun þín
falskar vonir
vil.
hausinn á mér
þessi fögru orð
gamlir vinir
vonandi aftur
stakk mig
hann sést ekki
hlynur þór
það sem þú snertir
hjartslátturinn þagnaði
kanski.
verður alltaf
ég er vatnið
afraid to love you
all gone?
Black Death
a fairytail
a great day
a long long time ago
Þínir vængir
ég hélt að ég vissi
hvað þú gerir mér.
I WANT YOU TO KNOW
that shit
my pain.
if i
safe me
SHAME
STOP
WHY I AM THIS WAY.
your heart
something.
bara eitt augnablik.