ég er vatnið
Ég er vatnið sem rennur niður kinnarnar á þér, rigningin sem lætur maskarann þinn renna til.
Seinasti dropinn sem fellur í glasið áður en það yfirfyllist.
Bleytan sem þú rennur til í á baðgólfinu rétt áður en þú brýtur hvert bein í líkamanum.
Ég er vatnið sem sker djúpa skurði í fjallshlíðarnar.
Ég er áin sem drekkir þér ef þú stendur ekki fast í lappirnar.
Ég er vatnið í brúsanum þínum eftir erfiðar æfingar.
Ég er vatnið sem lekur niður hendur þínar sem þú skvettir framan í þig þegar þér finnst heimurinn vera að hrynja. Ég er vatnið sem fyllir augun þín þegar þig dreymir illa. Svitinn sem lekur niður líkamann þinn.
Andaðu inn í mig og ég leysist upp.
Ég er vatnið sem klýfur steininn þegar það frýs.
ég er vatn en þú ert sjór.  
þórdís katla sævarsdóttir
1983 - ...


Ljóð eftir þórdísi

save tonight.
til hvers
hann
you are all within.
lost
kill me.
inn í mér.
reyni.
hún er sem eitur.
how he does things.
my baby
öll ég
Aðeins til þín
augun þín
falskar vonir
vil.
hausinn á mér
þessi fögru orð
gamlir vinir
vonandi aftur
stakk mig
hann sést ekki
hlynur þór
það sem þú snertir
hjartslátturinn þagnaði
kanski.
verður alltaf
ég er vatnið
afraid to love you
all gone?
Black Death
a fairytail
a great day
a long long time ago
Þínir vængir
ég hélt að ég vissi
hvað þú gerir mér.
I WANT YOU TO KNOW
that shit
my pain.
if i
safe me
SHAME
STOP
WHY I AM THIS WAY.
your heart
something.
bara eitt augnablik.