ég hélt að ég vissi
ég hélt að ég vissi,
en ég vissi ekki neitt.
ekki einu sinni pínulítið.

ég hélt að ég mundi finna,
en ég fann ekkert,
bara bleytuna af regninu.

ég hélt að ég vissi hvað ást væri,
ég vissi ekki neitt,
ég var með hjarta sem ég fann ekki fyrir.

ég hélt að ég vissi hvað líf væri,
ég vissi ekki neitt,
ég var ekki lifandi.

ég hélt að ég vissi hvað dauði væri,
ég vissi ekki neitt,
ég fann sjálfan mig bara dauða í þögninni.

ég hélt að ég vissi allt,
í rauninni ekki neitt,
ég vissi að þegar þú sagðir mér og útskýrðir,
ég fann þegar þú umvafðir mig heilbrigði að nýju,
ég þekkti ást þegar þú tókst mig í þinn faðm,
ég vissi hvað líf var þegar ég fann það i sjálfri mér,
ég vissi hvað dauði var þegar ég upplifði hann að alvöru.

nú skil ég mikið en ekki allt,
en það er allt í lagi,
því það er erfitt að gefa dauðri sál líf aftur.

þks
 
þórdís katla sævarsdóttir
1983 - ...


Ljóð eftir þórdísi

save tonight.
til hvers
hann
you are all within.
lost
kill me.
inn í mér.
reyni.
hún er sem eitur.
how he does things.
my baby
öll ég
Aðeins til þín
augun þín
falskar vonir
vil.
hausinn á mér
þessi fögru orð
gamlir vinir
vonandi aftur
stakk mig
hann sést ekki
hlynur þór
það sem þú snertir
hjartslátturinn þagnaði
kanski.
verður alltaf
ég er vatnið
afraid to love you
all gone?
Black Death
a fairytail
a great day
a long long time ago
Þínir vængir
ég hélt að ég vissi
hvað þú gerir mér.
I WANT YOU TO KNOW
that shit
my pain.
if i
safe me
SHAME
STOP
WHY I AM THIS WAY.
your heart
something.
bara eitt augnablik.