Lífið og tíminn
Ég geng eftir ströndinni
og elti í sandinum meint fótspor.
Og sé þau hverfa í fjarska –
- svo endalaust.
Enn í raun eru þau að koma til mín
því að fótspor þín eru frelsið
sem þú áttir - í átt til drauma þinna –
og þau enda aldrei...
Fótsporin segja þér sögu
af rútínugöngu lífs þíns
sem á sér eitthvað upphaf
en engan endi.
Þau segja þér frá vonum þínum og þrám
og fyllingu lífs sem þú eignaðist aldrei.
Við enda strandarinnar sérðu fótsporin
mást út hægt og hægt......
Þegar þú snýrð þér við eru þau engin.
Þú ert á endastöð.
og elti í sandinum meint fótspor.
Og sé þau hverfa í fjarska –
- svo endalaust.
Enn í raun eru þau að koma til mín
því að fótspor þín eru frelsið
sem þú áttir - í átt til drauma þinna –
og þau enda aldrei...
Fótsporin segja þér sögu
af rútínugöngu lífs þíns
sem á sér eitthvað upphaf
en engan endi.
Þau segja þér frá vonum þínum og þrám
og fyllingu lífs sem þú eignaðist aldrei.
Við enda strandarinnar sérðu fótsporin
mást út hægt og hægt......
Þegar þú snýrð þér við eru þau engin.
Þú ert á endastöð.