Stjarnan
Við gluggann ég stend og stari
á stjörnu er á himni skín.
Sú von í brjósti mér bærist
að brosi hann þar til mín.
Sárt mein er í mínu hjarta
ég minnist lítils barns
sem átti sér enga framtíð
og aldrei komst til manns.
Ég bið því Guð minn góður
geymdu hann við brjóstið þitt.
Og gefðu að leiðarlokum
ég líti aftur barnið mitt.
á stjörnu er á himni skín.
Sú von í brjósti mér bærist
að brosi hann þar til mín.
Sárt mein er í mínu hjarta
ég minnist lítils barns
sem átti sér enga framtíð
og aldrei komst til manns.
Ég bið því Guð minn góður
geymdu hann við brjóstið þitt.
Og gefðu að leiðarlokum
ég líti aftur barnið mitt.