Þú ert lítill...
Þú ert lítill
og ljóshærður
drengurinn minn
og liggur
í rúminu þínu.
Ég kom til að hugga
og hughreysta þig
og halla
að brjóstinu mínu.
Hver var það sem brást?
Var það ég eða Guð?
Ég veit
því er erfitt að svara.
En það veit ég þó
að sé eilífðin öll
ein þjáning,
mun ást mín samt vara.
og ljóshærður
drengurinn minn
og liggur
í rúminu þínu.
Ég kom til að hugga
og hughreysta þig
og halla
að brjóstinu mínu.
Hver var það sem brást?
Var það ég eða Guð?
Ég veit
því er erfitt að svara.
En það veit ég þó
að sé eilífðin öll
ein þjáning,
mun ást mín samt vara.