vorfiðringur
finnst ég vera hálfgerð kind á þessum árstíma
svo sterk lykt af jörðinni, drullunni og grasinu
langar til að leggjast á beit og smjatta á nýgræðlingunum
nudda snoppunni uppúr blautri vellyktandi móðurjörðinni
skoppa um og súpa vatn úr öllum pollum og tjörnum
losna undan þungri vetrarullinni til að njóta sólarylsins
og bægja frá mér óttanum um vetur handan komandi sumars