fölsk ást
eins og ballerína á spiladós
snerist ég í hringi
svo falleg og glitrandi,
íklædd postulínsmjúkum
silkikjól með litlum perlum
og hárið flóði niður axlirnar
ljóst og glansandi,
eldrauðar varirnar
umluktu mjallhvítt brosið
sem var alltaf frosið
en ísköld fegurðin heillaði samt
þar til spiladósin datt í gólfið
og ég lá brotin í skítnum,
þá sást að ég var hol að innan,
full af engu,
og sködduð skelin dugði ekki lengur til,
enginn elskar ekkert  
Ingibjörg Rósa
1976 - ...


Ljóð eftir Ingibjörgu Rósu

fyrsta ljóðið
kærkomin deyfing
afmælisskál
Borðbæn
ladída
rússneska lagið
berrössuð
allt búið
djöfladansinn
ég hlæ
vonlaus
lítil frænka
leyndarmál
kláði
leifar
svart
klessa
mér er kalt
trúður
partí
rask
eftirá
hefnd konu
feðralag
útstáelsi
frilla mín
móðgun
blóðbað
einspil
draumaskúrkurinn
jólalyktin
samviskan
svo ein
klækir
íslenskt sumar
það er komið sumar
nútímaást
helvítis beljan
dauðaslys
óveðursnótt
leikurinn
hún sem grét
stundaglas
fyrir utan
útskrifuð
speglun
kreppan mín
frostatíð
morð sjálfs
vorfiðringur
fölsk ást
við matarborðið
fallið