Mér er óglatt af ást
Mér er óglatt af ást
(Skyldi verða eitthvað úr þessu?)
Mér er óglatt af ást, byrjuð
að æla.
Finnst þér um fátt
farin er ég þó að skæla.
Ég er með ógleði, uppsölu,
iðrakveisu,
- en þú ert með stæla!!!
Ég er með hjartaáfall, hugsýki,
harðlífi,
- ertu ekkert að pæla???
(Skyldi verða eitthvað úr þessu?)
Mér er óglatt af ást, byrjuð
að æla.
Finnst þér um fátt
farin er ég þó að skæla.
Ég er með ógleði, uppsölu,
iðrakveisu,
- en þú ert með stæla!!!
Ég er með hjartaáfall, hugsýki,
harðlífi,
- ertu ekkert að pæla???