Er það nokkuð undarlegt ...
Er það nokkuð undarlegt að elska
augun bláu er birtust minni sýn ?
Ég hét þér því að unna á ævivegi
elsku hjartans blómadýrðin mín.
Ástarstjörnur tvær af elsku ljóma
og ávallt vísa veg um myrkrið þétt.
Og þegar illir draumar að mér sækja
þú undurblítt minn vanga strýkur létt.
Ég var í sorg er sendur varstu til mín
svona obbolítil písl með augun dökk.
Er það nokkuð undarlegt að elska
- allra heitast- kött ?
augun bláu er birtust minni sýn ?
Ég hét þér því að unna á ævivegi
elsku hjartans blómadýrðin mín.
Ástarstjörnur tvær af elsku ljóma
og ávallt vísa veg um myrkrið þétt.
Og þegar illir draumar að mér sækja
þú undurblítt minn vanga strýkur létt.
Ég var í sorg er sendur varstu til mín
svona obbolítil písl með augun dökk.
Er það nokkuð undarlegt að elska
- allra heitast- kött ?