Því kemur sorgin að nóttu til ?
Nóttin kemur og læðist inn,
og tekur ástvini þína frá þér.
Þessvegna sit ég við gluggann
og bíð eftir deginum.
Dagurinn færir mér von
um að ástvinir mínir komi aftur
Augu mín daprast og sál mín kulnar
- vonin hefur yfirgefið mig líka.
Nóttin er í svörtum fötum –
ég líka
svo hún taki mig ekki líka
frá ástvinum mínum.
Því kemur sorgin að nóttu til ?