Rjúpa
,,Karrrr ka ka ka
karrrr ka ka ka.”
Fleygir vakta varpstaðinn
og varast heitan eldinn.

,,Karrrr ka ka ka
karrrr ka ka ka.”
Á sjálfið þeir trúa og treysta,
tindinn klífa með vonarneista.

Að lokum ævinnar sólarlag sest,
situr prýðilega á toppnum.
Gnæfir yfir þá dauðans pest
að titra og skjálfa á kroppnum.

,,Karrrr ka ka ka
karrrr ka ka ka.”
 
Guðni Brynjólfur Ásgeirsson
1993 - ...
Sagan af rjúpunni og Maríu mey sýnir hvers megnug rjúpan er.
Við mannfólkið ættum að taka rjúpuna til fyrirmyndar.



Ljóð eftir Guðna Brynjólf Ásgeirsson

Hestamannaferðir
Gammur – hæfileikaríkur
Einn eftir!!
Lífsins alvara
Rjúpa