Ljósið í myrkrinu
Ekki get ég varist því þegar ég geri mér ferð í Kolaportið til að kaupa mér harðfisk og lyktin leggur á móti mér svo yndislega stæk að mér detti ekki gamall elskhugi minn í hug.
Reyndar var hann sá síðasti í röðinni af langtíma bólfélögum mínum og eru þó nokkur ár liðinn frá hans blómaskeiði í lífi mínu.
En harðfisksins vegna er ekki svo auðvelt að afmá minninguna um eldheita ástarfundi í vistarverum þessa fyrrverandi ástmanns míns. En hann bjó á umræddu tímabili í einu herbergi með aðgangi að baði, í kjallaranum hjá ömmu sinni í hrörlegu húsi í miðborg Reykjavíkur.
Það var smá aldursmunur á okkur honum í vil en ekki fann ég fyrir því, nema þá í bólinu, en þar eyddum við mestöllum tíma okkar í þessum niðurgrafna, en þó funheita kjallara.
Kjallarinn þessi var sannkallað ástarhreiður þar sem við pældum ekki í neinum óþarfa eins og að ganga þokkalega um enda óhægt um vik, því sökum skorts á rými neyddist ástmögur minn til þess að nýta herbergið jafnframt sem forðabúr og geymslu.
Það var einna helst myrkrið sem hrjáði okkur því kúpul vantaði á einu ljósaperuna í herberginu og þar sem glóandi peran skar í augun kusum við að kveikja aldrei ljósið.
Það krafðist því einstakrar lipurðar af okkar hendi að skáskjóta sér upp í rúm sér til yndisauka, því allt um kring, var staflað hinum ýmsu nauðsynjavörum sem menn þurfa helst á að halda sér til lífsviðurværis.
Má þar til dæmis nefna fiskibollur í dósum sem við borðuðum kaldar beint upp úr dósinni, kartöflustrimla einnig í dósum og svona ýmislegt annað matarkyns sem ekki þurfti að geyma í kæli né þurfti eldunnar við.
Það var aðeins í hádeginu á sunnudögum sem svo mikið var við haft að prímusinn var dreginn fram undan rúminu og soðin ilmandi kjötsúpa sem okkur þótti hin mesti hátíðamatur.
Staflar af hreinlætisvörum stóðu svo hér og þar um herbergið og entust þær birgðir öll þau ár sem við héngum saman, að undanskildum skeinipappírnum sem var endurnýjaður reglulega eins og lög gera ráð fyrir.
Það eina sem ég gat sett út á í allri þessari óreiðu voru silfurskotturnar á baðgólfinu.
Samt lærðist mér fljótlega að óþarfi væri að óttast þær því þær hurfu undantekningarlaust eins og unglingar sem eiga að fara út með ruslið um leið og ljósið var kveikt.
En hvar kemur þá harðfiskurinn inn í myndina? Jú, elskhugi minn elskaði harðfisk næstum jafn heitt og mig sjálfa og þess vegna þótti mér hann auðvitað líka góður. Best þótti okkur að spæna hann í okkur í bælinu, þegar við lágum þar örmagna eftir unað og erfiði ástarleikjanna og nenntum ómögulega á lappir.
Roðinu hentum við svo undir rúm, þar sem það harðnaði og gegnum þurrkaðist í hitanum frá rúmstæðinu þar til með tíð og tíma lagði frá því hina indælustu angan um allt herbergið.
Langt er síðan sá ég hann... En heyrt hef ég að þessi fyrrverandi ástarpungur minn, sem var sannkallaður listamaður á fleiri sviðum en í bólfiminn einni saman, búi ekki lengur í kjallaraholunni. - Hann hafi grætt offjár á einkaleyfi á forláta ljósakúplum úr fiskroði.