Upprifjun
Í fyrra haust
hafði hún
verið hér

staulast
gangstíginn
í leit að framtíð

þráð
að sjá
aðeins enn
eitt blóm


hafði
blómstrað á ný

Og í dag
ætlaði hún
að byrja á....

Einnig
rifja upp

herbalife
eitthvað...  
Norma E. Samúelsdóttir
1945 - ...
Úr bókinni <a href="mailto:nohu@simnet.is?subject=[Pöntun]: Kona fjarskans / konan hér">Kona fjarskans / konan hér</a>.
Eigin útgáfa höfundar, 2002.
Allur réttur áskilinn höfundi.


Ljóð eftir Normu E. Samúelsdóttur

Að duga
Er það ekki í lagi?
Uppfylling<br>(eða tannpína)
Nánd
Upprifjun
Upprifjun