í gegnum tíðina
Í gengnum sporum gamalla tíða
glöddust smáenglarnir yfir hverjum degi
sem leið hjá svo ljúft
og letilega
að blessuð litlu börnin nenntu engu
brölti heldur
léku sér léttfætt
í ljósinu
frá glaðlyndu kringlunni gulu
sem Guð hafði
límt lauslega uppá
ljósbláan himininn.
En gegnum stóru gráu skýin
kom gamall maður röltandi
með stærri bláa könnu sem rigndi úr blávatnsdropum
á börnin
svo þau spruttu upp og sprengdu utan af sér fötin
spengileg og skyndilega fullvaxta.
glöddust smáenglarnir yfir hverjum degi
sem leið hjá svo ljúft
og letilega
að blessuð litlu börnin nenntu engu
brölti heldur
léku sér léttfætt
í ljósinu
frá glaðlyndu kringlunni gulu
sem Guð hafði
límt lauslega uppá
ljósbláan himininn.
En gegnum stóru gráu skýin
kom gamall maður röltandi
með stærri bláa könnu sem rigndi úr blávatnsdropum
á börnin
svo þau spruttu upp og sprengdu utan af sér fötin
spengileg og skyndilega fullvaxta.