Horfum fram á veginn
Já manstu fyrstu kvöldin okkar forðum
og fundi okkar saman daga’ og kvöld.
Um okkar ást við fórum fögrum orðum
og fannst við verða saman heila öld.
Samt létum við tvö samband okkar gliðna
og síðan héldum hvort í sína átt.
Ég gat ei látið vera’ og gleymt því liðna
og gef mig allan til að reyna sátt.
Til hliðar set ég fortíð okkar feginn
frekar spyr ég, hvað við getum bætt.
Við skulum horfa saman fram á veginn
þá samband okkar er að nýju fætt.
Mundu hvernig vonir okkar voru
(við) vissum hversu eilíf ástin var.
Við aldrei myndum fara hvort frá hvoru
með kossum okkar læstum minningar.
og fundi okkar saman daga’ og kvöld.
Um okkar ást við fórum fögrum orðum
og fannst við verða saman heila öld.
Samt létum við tvö samband okkar gliðna
og síðan héldum hvort í sína átt.
Ég gat ei látið vera’ og gleymt því liðna
og gef mig allan til að reyna sátt.
Til hliðar set ég fortíð okkar feginn
frekar spyr ég, hvað við getum bætt.
Við skulum horfa saman fram á veginn
þá samband okkar er að nýju fætt.
Mundu hvernig vonir okkar voru
(við) vissum hversu eilíf ástin var.
Við aldrei myndum fara hvort frá hvoru
með kossum okkar læstum minningar.