

Ég fékk vindinn beint í fangið
fullan ástríðu og ofsa.
Villtur hann vafði mig örmum
og vanga lagði að rjóðri kinn.
Hann kyssti mig kaldur heitt á munninn
en hvíslaði spyrjandi í eyra
Muntu elska mig enn
á morgun?
fullan ástríðu og ofsa.
Villtur hann vafði mig örmum
og vanga lagði að rjóðri kinn.
Hann kyssti mig kaldur heitt á munninn
en hvíslaði spyrjandi í eyra
Muntu elska mig enn
á morgun?