Örlaganna saga
Söguna alla verður að segja
um stríð sem er búið að heyja.
Hann má ekki sitja og þegja
því þá óttast hann að deyja.

Hrímkalt kvöldið þetta haust
er beint í hjartað örin skaust.
Amor inn í hjartað braust
ástin tendruð fyrirvaralaust.

Rugluðu fljótt saman reitum
böðuð í rósum og ástarheitum.
Ástin tjáð með ástarskeytum
sem hélt hjörtunum funheitum.

Um sumar fann fyrir ofsakvíða
og óttinn fór honum að stríða.
Ritaði bréf því ekki mátti bíða
því lífið þurfti áfram að líða.

Gat ekki við hann væri veikur,
ótti við höfnun var ekki leikur.
Á hörku hann hamaðist keikur
þrátt fyrir hann væri smeykur!

Var sekur að segja ekki frá,
ákvörðun sem hann eftir sá.
Dreymdi um að kúra þér hjá
og létta af öllu sínu hjarta á.

Af hræðslu við höfnun þagði
og óttasleginn ekkert sagði.
Ofsakvíði lúmskt hann lagði
af ótta við höfnun guggnaði.

Hann vildi ekki neinu leyna
en kvalinn af kvíða að reyna.
Í neyð var tímann að treina
Til að þrífa samviskuna hreina.

Eðlilegt að verða reið og sár
og upplifa svik eftir heilt ár.
Er það eðlilegt að fella ei tár
að slíta trúlofun sem lítið hár?

Sakbitinn settist á næsta torg
í skömm, iðrun og ástarsorg.
Lífið er líkt og skotgrafin borg,
Er hægt að deyja úr sorg?

Þú vildir ekki meira að ræða,
væri ekkert á því að græða!
Blóm og bréfi náði að læða
en uppskar hjarta að blæða.

Í kulda og kvöl daga langa
lét sársauka yfir sig ganga.
Stöðug áföll átu hans anga
árasir tóku sál hans til fanga.

Köld kvíða- og hræðsluköst
krömdu sálina sem varð föst.
Fékk barnæskunnar ljóta löst
sár drengur tók út reiðiköst.

Var vont að dauða að þefa
og vilja Drottni líf sitt gefa.
Bað bænir en þó samt í efa,
kvöl drengsins myndi sefa.

Æðri máttur fyrir honum bað
sem sagði allt sem var að.
Veikur tefldi á tæpasta vað,
tapaði og dæmdur fyrir það!

Örlög hans er súrsæt saga,
kulnaður tók byrði að draga.
Réttlæti lífsins hélt til haga,
sanngirni lífsins fór að laga.

Sagan búin og ráð að beygja
því ný stríð er farinn að heyja.
Söguna mun hann oft segja
því sár gróa ekki við að þegja.
 
askele
1965 - ...


Ljóð eftir askele

Sál sem enginn sér
Hafið gefur og tekur
Örlaganna saga
Þú aldrei spurðir