2. desember 2022
Merkilegur dagur því að
fíni maðurinn
af fínu ættinni
með öll feðraveldisfríðindin.
Hagfræðingurinn
Dótturkvalarinn
Kennarinn
Nemendatælirinn
Blaðamaðurinn
Þjáningadreifarinn
Þingmaðurinn
Rassaklofkáfarinn
Ráðherrann
Kynferðisáreitarinn
Sendiherrann
Klámbréfritarinn
Gistiprófessorinn
Girndaplagarinn
Gestafyrirlesarinn
Fjölþreifarinn

Sem áður var…
- Stórlax
- Valdamikill
- Ósnertanlegur.

Var í dag dæmdur sekur um káf.

Loksins er nýr veruleiki runninn upp.
Feðraveldið er í rénun.
Brot gegn konum er nú loksins orðið brot.
Réttlæti þolenda er handan við hornið.
Takk Landsréttur
Takk.  
Elín Kona Eddudóttir
1965 - ...
Jón Baldvin Hannibalsson var dæmdur fyrir káf.


Ljóð eftir Elínu Konu Eddudóttur

Grýludraumar
Framadraumar Leppalúða
Kosningarnar 2013
Glugginn minn og glugginn þinn
Ölfusá
Gengið um götur Guðmundar góða
Kona í landi sona
2. desember 2022
Kvennakváraverkfall 24. október 2023
Valdeflingardraumur
Skólastjórn sem bitnar á…