Þögnin
Ég hélt það dyggð
þagði
mætti ógninni ein
meðal nartandi hrægamma
sat ég hljóð
sigldi milli skers og báru
veðurbarið andlit mitt hert
af söltum tárum
var hetja
þögnin
sú andstyggðar dyggð
bjó til hetju
skildi okkur að
þagði
mætti ógninni ein
meðal nartandi hrægamma
sat ég hljóð
sigldi milli skers og báru
veðurbarið andlit mitt hert
af söltum tárum
var hetja
þögnin
sú andstyggðar dyggð
bjó til hetju
skildi okkur að