Sorgin
Sorgin heldur mér fanginni
vakir yfir hverju fótmáli

hverri hugsun
löngun
þrá

togar mig út úr samræðum
úr gleðskapnum

hrellir yfir sjónvarpsmynd
þröngvar sér inn í drauma

vakir yfir minningu þinni
fæ ekki að gleyma

lokar hjarta mínu
fæ ekki að elska

dregur úr mér þrótt
nenni ekki að lifa

vill ekki sleppa mér

því þá hverfur þú  
Íris Guðmundsdóttir
1968 - ...


Ljóð eftir Írisi

Meðal fagurkeranna
Lokaðu dyrunum
Segðu ekki
Þú stóðst svo nærri
Sástu við mér?
Hverf aftur
Þögnin
Suðurlandið mitt
Leiktu fyrir mig lagið
Við rökstól viskunnar
Sorgin
Tilvistarkreppa
Ópíum
Hver vegur að heiman...
Trú
Þar sem sorgin hefur búið sér hreiður
Ættarmót
Ómerkt gröf
Vígt hjarta
Ég elskaði sál
Nóttin er mín
Ég syrgi svo margt
Máninn okkar
Hver reisti þennan múr?
Afhjúpun
Missir
Tafl ástarinnar
Legg til mín
Greftrun
Slökk þennan eld
Ráðþrota