Meðal fagurkeranna
Meðal fagurkeranna á safninu, sat einmana verk á hillu. Sprungið og máð, án forms og stefnu. Nafnlaust verk án höfundarréttar. Margþætt og löngu gleymd saga, bundin í leirbrotum og ryki. Saga listamannanna mörgu sem það mótuðu.