Sjónhverfing þín.
Hjarta mitt bráðnaði
og varð að söltum sjó
sem flæddi út í augu mín.

Frostrósirnar bráðnuðu
sem áður létu móðu
yfir saklaus augu mín.

Tinnudökkt hárið
kolsvart,
Sæbláu augun
steingrá.

Fallega brosið
háðslegt glott,
heillandi röddin
ískrandi, skær.

Unaðslega ástin
leikur einn,
Framtíðin okkar
sjónhverfing.
 
Þór
1983 - ...


Ljóð eftir Þór

Samheiti/andstæða.
Deyjandi Rós.
Ofsóknir
Rotnaðar minningar
Sjónhverfing þín.
Tár í myrkrinu
Misheppnaður
Fortíðin
Ósýnilegur