Insomnia
16/7 '00
Insomnia
Gakktu inn í augun mín,
í minn eitraða hugarheim.
Þar sem hugsun mín er ein í alheiminum.
Þar er alheimurinn hugsun í huga mér.
Þar hefur mér blætt
ég hef svitnað,
hef tárast.
Þar hef ég séð hluti sem allir sjá
en með öðrum augum.
Ég sé dag sem nótt
og nóttin er minn dagur.
Ég sé himnaríki loga
og hve Helvíti er fagurt.
Insomnia
Gakktu inn í augun mín,
í minn eitraða hugarheim.
Þar sem hugsun mín er ein í alheiminum.
Þar er alheimurinn hugsun í huga mér.
Þar hefur mér blætt
ég hef svitnað,
hef tárast.
Þar hef ég séð hluti sem allir sjá
en með öðrum augum.
Ég sé dag sem nótt
og nóttin er minn dagur.
Ég sé himnaríki loga
og hve Helvíti er fagurt.