Of ungur
26/6 '00

Of Ungur

Of ungur til að horfa á heiminn,
geng eftir vegi sem enginn sér.
Baneitraðar hugsanir, hættuleg orð,
í sameiningu vel fær um að fremja morð.

Of ungur til að geta átt fortíð,
framtíð virðist ekki réttlætanleg.
Samviskubit vegna þess sem ég hef ekki gert,
samviskubit vegna þess sem þú ekki ert.

Of ungur til að velja og hafna,
of reiður til að greina mun.
Vildi geta snúið við og valið aðra leið,
vildi geta fundið eina sem er greið.  
Ilmbjartur Sumarliðason
1980 - ...


Ljóð eftir Ilmbjart Sumarliðason

Á kvöldin
Aldrei aftur eins
Allt
Auðveldast
Augun
Á ógnarhraða
Breyttu þér
Civic
Dísir
Draumaleit
Dýpi dagsins
Eigin heimur
Einhver annar
Einu sinni enn
Ekki lengur
Engin orð
Eymd örlaganna
Ég hverf
Ég vildi
Ferðin heim
Fíkn
Helsærður
Hér átti ég heima
Hindrun óttans
Hún ein veit
Insomnia
Insomnia II
Í Öskjuhlíð
Lengi vel
Man
Mátturinn
Móðir
Mr. Rowe
Nor-Isl
Of ungur
Reykur
Sarp-Berg
Sekur sakleysingi
Sérðu hvað gerir þig hræddan ?
Spegill Sálarinnar
Tímaþröng
Túr
Útlendingur
Vakna
Verzlunarmannahelgi
Viltu vinna milljón
Það sem ekki má
Þjáningardraumur
Ökuferð