Það sem ekki má
1/10 '00
Hún kemur, fer
stríðir mér
með því sem ekki má.
Leyfir mér að sjá
allt sem hún á.
Hún æsir mig,
snertir sig
augun full af ást.
Því lætur hún mig þjást
við megum ekki sjást.
Ég loka mér,
ef ekkert er
gerist ekki neitt.
Ég þrái þig svo heitt
svo marga getum meitt.
Hún kemur, fer
stríðir mér
með því sem ekki má.
Leyfir mér að sjá
allt sem hún á.
Hún æsir mig,
snertir sig
augun full af ást.
Því lætur hún mig þjást
við megum ekki sjást.
Ég loka mér,
ef ekkert er
gerist ekki neitt.
Ég þrái þig svo heitt
svo marga getum meitt.