Tilfinningar
Ef hjarta væri ég með/mér væri það þvert um geð/því frá því koma tilfinningar/því þurftu þær að koma hingað?/Því þó að ástin sé til staðar/eru svo margar sem auðveldlega skaða/þær komu flestar úr litlu boxi/sem gefið var til stelpukjána/sem átti svo öðrum það að lána/stelpukjáninn ekkert vissi/og höggormurinn úr sér missti/að hún opna það ætti/þó það ekki mætti/hún er leiðingi leysti/allt sem vont er í heimi hér.
Og útaf þessum stelpukjána/ég hjarta mitt mun aldrei lána/þó þeir glaðir gerðu allt/það væri eins og að setja salt/í opið sér, því ástin mun/að lokum kulna, deyja út/og ekkert verður eftir nema hatrið kalt.
Ef gáfur ég hefði/ég frá mér þær gefi/því þaðan kemur lymskan, útsmogin lús/sem læðist inní heila manna/og læðist út á milli tanna/og maðurinn fús/hlýðir henni í einu og öllu/hann telur það víst sína köllun/að svíkja sína vini og pretta/og því vil ég segja þetta:/að lymska og kænska fara ekki vel saman/því af því leiðir ástvinamissir, og fleira lítið gaman.

ég á eftir að bæta meira við þetta..