Siggi minn
Þegar ekkert annað bíður,
nema kuldinn og kvöldið svart.
Meðan sérhver sekúnda líður,
án þín hér vantar svo margt.
Í huga mér fyllist ég ótta,
um hamingju þín með mér.
Er hjarta þitt ennþá á flótta,
eða verður það ætíð hér?
Þú veist það er fátt hér í heimi,
sem gleður mig neitt á við þig.
Hverju einasta tári ég gleymi,
þegar tekur þú utan um mig.
Ég lofa þér núna og alltaf,
mun ég styðja þig eins og ég get.
Ég lofa að elska þig allan,
á eilífð ég markið set.
nema kuldinn og kvöldið svart.
Meðan sérhver sekúnda líður,
án þín hér vantar svo margt.
Í huga mér fyllist ég ótta,
um hamingju þín með mér.
Er hjarta þitt ennþá á flótta,
eða verður það ætíð hér?
Þú veist það er fátt hér í heimi,
sem gleður mig neitt á við þig.
Hverju einasta tári ég gleymi,
þegar tekur þú utan um mig.
Ég lofa þér núna og alltaf,
mun ég styðja þig eins og ég get.
Ég lofa að elska þig allan,
á eilífð ég markið set.