Ástarljóð
Má ég ganga inn?
Ætli það sé í lagi?
Því ég þrái ekkert annað en þig
þó svo að ég spái í annað.

Viltu leika við mig?
Má ég leika við þig?
Ég reyni allavegana á það,
þó að ég viti að það sé bannað.

Spurning hvort við eyðum kvöldinu saman?
Bara ég og þú,
það verður ábyggilega gaman.
Þú lítur svo laglega út.

Þessi fallegi, netti háls
og ekki er höfuðið síðra.
Þessi laglegi botn á þér líka
og allt það sem inní þér býr.

Ég held bara að ég láti vaða,
gríp um þig alla með annari hönd.
Dreg þig að mér og lyfti þér upp
og helli úr þér uppí minn munn.

Aaahh, hvað þetta er gott,
þú bjargaðir lífi mínu.
Ég veit ekki hvar ég væri
Ef ég ætti þig ekki að

...þú elsku besta flaska af spíra  
Jón
1986 - ...


Ljóð eftir Jón

Hugsun
Spurning
Sólin
?
Dáin glötun
Hughverfa
Draumur á menningarnótt
Drumbufall
Dansdvergurinn
Dalagrafarinn
To my love that hated me...
Smá spekúlering um Jesú
Áðan
Kvöldið
ónefnt
Eyðinlegging
Tíu sek. úr huga geðsjúklings (útlenska)
...
....
.....
Sumarhugsun
Málið
Samanburður
Rauð hár
Eitt af óskrifuðu lagaákvæðum þjóðarinnar.
Skyndikynni
Bíltúr
Satt og ósatt
Óboðinn gestur
Kannski
Frome
Time
Fuglinn
Þögullt óp
Samningur rofinn
Sjón er sögu leiðinlegri
Á dansleik
Útgeislun
Reiði
Ég veit ekki einu sinni hvað þú heitir
Litla stelpan mín
Vonbrigði
Ósk
Litla stelpan
Dramur á Fös. 13.
Stelpan hinum megin
Til vinkonu
Ástarljóð
Pólitískar vangaveltur um nútíma samfélög
Geðveiki
Litla hóran mín
Gamla konan á Hlemmi
Showing lies
Þynnka