Fuglafólkið
Fagurlega lagfærir hann
silfurlitar fjaðrirnar
fimum fingrum
Teygir síðan úr grönnum líkamanum
áður en hann hefur sig til flugs
sem fálki
Fimlega fer hún höndum
um hvítt hár sitt
festir í hnút
Hrollur fer um hana
er hún gengur nakin
niður að vatninu
og leggst til sunds
sem svanur
silfurlitar fjaðrirnar
fimum fingrum
Teygir síðan úr grönnum líkamanum
áður en hann hefur sig til flugs
sem fálki
Fimlega fer hún höndum
um hvítt hár sitt
festir í hnút
Hrollur fer um hana
er hún gengur nakin
niður að vatninu
og leggst til sunds
sem svanur