snjóengillinn
í sviðsljósi tunglsins
sést stirna á frostrósir
brostinna augna
stirt grýlukertabrosið
minnir á martröð
fyrir jól
af snjóenglinum er það að segja
að hann fennti í kaf
varð úti
með jólakúluglampa
í tindrandi augum
koma börnin hlaupandi inn
löngu gleymdur
er snjóengillinn
sést stirna á frostrósir
brostinna augna
stirt grýlukertabrosið
minnir á martröð
fyrir jól
af snjóenglinum er það að segja
að hann fennti í kaf
varð úti
með jólakúluglampa
í tindrandi augum
koma börnin hlaupandi inn
löngu gleymdur
er snjóengillinn