Ég elska þig
Ég elska þig.
Ég gerði mér ekki grein fyrir því,
fyrr en það var of seint.
Kannski að það sama eigi við þig?
Ég veit þú elskar mig,
þú komst til mín í draumi
og sagðir mér það sjálfur.

Ég elska þig svo heitt,
ég hef elskað þig alla tíð.
Alveg frá því ég hitti þig fyrst,
jafnvel fyrr.

Ég mun ávallt elska þig,
þótt sá tími komi,
að ég hugsa ekki um þig alla daga.
Þá vil ég að þú vitir að ég elska þig.

Ég elska þig
og mun ávallt elska þig.
Því samdi ég þetta ljóð til þín.
Svo þú vitir að ég elska þig.
Ástín mín.....  
Ólöf
1983 - ...


Ljóð eftir Ólöfu

Ég get ei
Geðbilaður og veikur
Orð tjáningar
Myrkrið
Vinátta og haf
Nakin kona
Sorgin nagar
Þegar...
Fjötrar Mannfólksins
Aldrei kemur þú
Ég elska þig
Ein og yfirgefin
Vonin
Eins og tónlist
Láttu á það reyna !!
Ást þín býr í mér
Nakin, köld og blóðug
Verð að dreyma.
Ég og þú
One of us....
Að gefast upp
I thought I was.....
Stupid love
Hafið
Hvað er hamingja?
Dísæt og súr
Grímur
We\'ll meet again
Ástin