Orð tjáningar
Hafa orð einhverja merkingu?
Merkingu sem líkaminn segir ekki,
með augngotum,
snertingu,
og framkomu.
Afhverju að taka mark á orðum,
þegar við sjáum meiningu
í verkum og augum.

Hvaða orð geta tjáð ást og hatur
betur en hegðun og augnráð.
Hvað eru orð?
Eitthvað sem líkaminn getur ei tjáð?
Eða eitthvað sem ætti að hverfa?
Getum við sagt það sem við viljum,
án orða?
Orð tjáningar.
Hvað eru orð?
 
Ólöf
1983 - ...


Ljóð eftir Ólöfu

Ég get ei
Geðbilaður og veikur
Orð tjáningar
Myrkrið
Vinátta og haf
Nakin kona
Sorgin nagar
Þegar...
Fjötrar Mannfólksins
Aldrei kemur þú
Ég elska þig
Ein og yfirgefin
Vonin
Eins og tónlist
Láttu á það reyna !!
Ást þín býr í mér
Nakin, köld og blóðug
Verð að dreyma.
Ég og þú
One of us....
Að gefast upp
I thought I was.....
Stupid love
Hafið
Hvað er hamingja?
Dísæt og súr
Grímur
We\'ll meet again
Ástin