Hræðsla??
Hatur, reiði, viðurstyggð!
Ást, hamingja, aðdáun!
Hver og ein tilfinning
flæðir um mig er ég sé þig.
Ég brosi í gegnum tárin,
neyði mig til þess.
Ég skil ekki þetta ástand,
milli ótta og hamingju.
Ég horfi í augu hans,
af óttablandinni virðingu.
Gæsahúð læðist um líkama minn,
og hugurinn fer á flug.
Er ást okkar byggð á ótta,
ótta við einveruna,
ótta við höfnun,
hræðslu við lífið.
Ég vil ekki vera hrædd lengur,
hvað um þig?
Ást, hamingja, aðdáun!
Hver og ein tilfinning
flæðir um mig er ég sé þig.
Ég brosi í gegnum tárin,
neyði mig til þess.
Ég skil ekki þetta ástand,
milli ótta og hamingju.
Ég horfi í augu hans,
af óttablandinni virðingu.
Gæsahúð læðist um líkama minn,
og hugurinn fer á flug.
Er ást okkar byggð á ótta,
ótta við einveruna,
ótta við höfnun,
hræðslu við lífið.
Ég vil ekki vera hrædd lengur,
hvað um þig?