Kveðja


Að stundu erum við skilin
sem silfruð næturdöggin
er kveður rósarblað
í birtingu morgunsólar,
og hverfum inn í eilífðina
með dansandi iðuköstum
deyjandi norðurljósa.
 
Dalurinn
1950 - ...


Ljóð eftir Dalinn

Kveðja
Getulaus
Það andaði köldu á milli okkar.
Þegar ég sá hana.
Ósk \"Fjallkonunnar\"
Frétt ,spurning, svar.
Kveiktu bara nýjan eld
Dóttir
Beðið
Gömul ást