Svikinn
Ánamaðkur,
slitinn í tvennt,
engist til og frá á jörðinni
og kvelst í þögn.

Getur hann lifað áfram hálfur?

Skilaðu helmingi hjarta míns
er þú hafðir á brott með þér
út nóttina.
 
Ásta Hrönn
1982 - ...
Febrúar 2005


Ljóð eftir Ástu Hrönn

Ástarþrá
Manía
Hvað átt hefur
Gullbrúðkaup
Ljóðaljóð
Æskuástin
Eymd
Svikinn
Ástarbiti