ómagar hugans nútímaflæðis
Í tíma og ótíma
hugsanaflæði
vit mín fylla
einstefna innflæðis
stíflað útflæði

blikkandi aðvörunarljós
bilun í aðsigi
yfirfullt rúm
lokað svæði

í nauð losa stífluna
það fremsta út flæðir
ei tilbúið tilveru sinni
óundirbúið sinni tilvist mætir

vanmegun sækir
ómagi annarra hugsana flæði
býður þess aldrei bót
samsæti samherja sinna aldrei mun njóta

fórnalömb útflæðis
hugurinn ábyrgur
neitar þó allri aðild
sekt sinni áfrýjar.  
Jónína Sesselja Gísladóttir
1969 - ...


Ljóð eftir Jónínu Sesselju Gísladóttur

ómagar hugans nútímaflæðis
Lífshlaup
Í FJÖRUNNI
án þín
Ró hugans