Ró hugans
Hvað er það sem nátturan býr yfir
sem með sinni tilvist einni
nær að hefja okkur á flug til
annars tilverustigs
þar sem hugur okkar drekkur í sig
alsnægtir hennar

ölvuð af hrífanleika hennar,
dulúð,fegurð og friðsemd
gleymum stund og stað
öllum lífsins erjum er sem
vikið á bug  
Jónína Sesselja Gísladóttir
1969 - ...


Ljóð eftir Jónínu Sesselju Gísladóttur

ómagar hugans nútímaflæðis
Lífshlaup
Í FJÖRUNNI
án þín
Ró hugans