Lífshlaup
Tíminn
hleypur áfram

staldrar
ei við

skeytir
ei um aðra

blákalt
stefnir áfram

engu
hefur að tapa

né nokkurs
að keppa við

nema
sjálfan sig

bölvað
tíma kapphlaupið

hans
er eilífðin  
Jónína Sesselja Gísladóttir
1969 - ...


Ljóð eftir Jónínu Sesselju Gísladóttur

ómagar hugans nútímaflæðis
Lífshlaup
Í FJÖRUNNI
án þín
Ró hugans