Góður skaði
Mig langar að
anda þér að mér;
sjúga orku þína
niður í lungun mín
og reykja þig
upp til agna
jafnvel þó
þú étir mig að innan
og ég hafi fengið ýtarlega
fræðslu um það
hversu skaðlegur þú sért mér.

 
Eygló Ida
1980 - ...


Ljóð eftir Eygló

Þegar haustar
Ummerki
Litið til baka
Tungl
Árangur sem erfiði
Blómaregn
við sjóinn
fyrirgefning
taktu mig með..
Innkaupaferð
Fjarlægð
leikrit
móðir
Söknuður
Fyrirhöfn
Þrengsli
nóttin
án titils
...
að lúta að vilja annarra
Góður skaði
Viðleitni
Göltur