Sköpun heimsins
Guð skapaði fílinn en ekki bílinn
Guð skapaði lús en ekki hús
Guð skapaði jörð og einnig fjörð.
Guð skapaði hestinn, líka prestinn.
Guð skapaði tré en ekki herðatré.
Guð skapaði tennur en ekki spennur.
Guð skapaði dúfu en ekki húfu.
Guð skaparði ljósið en ekki fjósið.
Guð skapaði Adam og Evu.
Guð skapaði hnöttin og líka köttinn.
Guð skapaði fiskinn en ekki diskinn.
Guð skapaði sól en ekki kjól.
Guð skapaði Jesúbarnið og þess vegna eru jól.
 
Bjarni Lúther
1987 - ...
Bjarni Jóhann Lúthersson
Haustið 1998


Ljóð eftir bjarna

Staka úr Scotlandsferð
Fuglinn
Ást
Heima
Sköpun heimsins
Hóllinn
Pétur Gautur
Á jólunum
Á páskunum
Sumar