Bænin
Mitt litla alheimsljós.
Þú komst
og þú kvaddir
eins og fegursta fölnandi rós.
Nú brestur mitt hjarta
og himnarnir gráta
er í mildan faðm guðs
ég legg þig,
litla barnið mitt bjarta.
Þú komst
og þú kvaddir
eins og fegursta fölnandi rós.
Nú brestur mitt hjarta
og himnarnir gráta
er í mildan faðm guðs
ég legg þig,
litla barnið mitt bjarta.