Engill
Einn fallegan dag var engill á sveimi,
raulaði lag þó í djúpinu eimi,
þá blossaði upp, aska og eldur,
með brunninn væng var engillinn felldur.

Með sviðinn væng og annan brotinn,
lá engill á sæng, niður skotinn.
Skotið frá víti hæfði hans hjarta,
hann ríkir nú kóngur í eldinum svarta.

Engill, engill með brotinn væng.
Engill, engill á eldsins sæng.
Engill, engill með brostinn baug.
Engill, engill sjá dauðans draug.

Í hrímhvítri höllu hörpunni gleymd\'ann,
sem leikið var á í gleði eitt lag,
of marga vonda draumana dreymd\'ann
nú Djöfullinn vakir jafnt nótt sem dag.  
Harpa Hlín Haraldsdóttir
1981 - ...


Ljóð eftir Hörpu Hlín Haraldsdóttur

Engill
Vorið
Andlit einmana stúlku
Hjartsláttur
Sama hvað
Nótt
Kveðja
Hjartasár
Dagur & Nótt
án titils
Starfskynning
Freðin hjörtu
Annar heimur
Snjókoma