Hetjan
Ég er hin mikla hetja,
áfram mun aðra hvetja
sem við mig kappi etja.
Þá skal ég út fletja,
mitt trýni upp á fitja,
alla síðan upp éta!
Gjöf til fagurra meyja,
án mín þær varla lífið þreyja.
Hugsa um mig
heimafyrir,
signa sig
í bak og fyrir.
Myndarlegur
og hár,
karlmannlegur
og klár.
Aldrei felli tár!
Oft sýni mig,
allir hylla mig,
vilja vera ég,
tilfinning notaleg.
Einn dag sló þögn á hópinn;
Algjör friður,
ég leit niður...
Sá að út gægðist mitt litla undur
buxnaþvengurinn var farinn í sundur!

 
Guggz
1987 - ...


Ljóð eftir Guggz

Til bróður míns
Kotungsbóndi
Ung móðir
Hetjan
Kría