Andvaka við hlið hans
Heyri andardrátt þinn
er þú sefur mér við hlið
að þú skulir loksins vera minn
eftir líkt og endalausa bið.
Ég fálma mig að bringu þinni
og hlusta á hjartsláttinn
og að ég hann finni
róar huga minn.
Þig ég hef elt svo lengi
án þess að þú litir á mig
og þegar ég vissi að þig ég fengi
þá fann ég, að ég elska þig.
er þú sefur mér við hlið
að þú skulir loksins vera minn
eftir líkt og endalausa bið.
Ég fálma mig að bringu þinni
og hlusta á hjartsláttinn
og að ég hann finni
róar huga minn.
Þig ég hef elt svo lengi
án þess að þú litir á mig
og þegar ég vissi að þig ég fengi
þá fann ég, að ég elska þig.