SNEMMA
Fagrir þjóhnappar þínir
svífa yfir hnökróttu teppinu.
Ég stend upp
og gyrði bumbuna ofan í brókina
og horfi á heiminn
í gegnum fingraför mánans á rúðunni.
Létt andvarp ískápsins í eldhúsinu
læknar fáránleikann
og hér erum við niðri við jörð á ný.
Ég bíð upp á kaffi.
Við sötrum seyðið
og lítum undan hvort öðru
af mikilli sannfæringu,
önnum kafinn við að sótthreinsa sárin.
Og þegar þú ferð, set ég upp gleraugun
og sting mér í hákarlabúrið.
 
Þórhallur Barðason
1973 - ...


Ljóð eftir Þórhall Barðason

FJÖRUBORÐIÐ.
LÖNGUN
AF GERÐ KRÓKÓDÍLA
Þrír
SPURNING UM SAMA SVARIÐ.
PEGASUS
ÞAÐ ER MUNUR
FEIMNI TIL ÞÍN
EFTIR AÐ ÉG VARÐ VONLAUS
SNEMMA
Á MÁLA UPPI OG NIÐRI
TIL SKÝSINS ( I I )
MISTUR
Þrír II
EF ÞÚ HEGÐAR ÞÉR EKKI HEIMSKULEGAR EN ÞETTA
ÉG Á ERFITT MEÐ AÐ HÆTTA AÐ ELSKA ÞIG
DÚFAN HVÍTA