Vindar Ástarinnar
Ástin er hverful
eins og vindurinn
þú veist aldrei
hvaða stefnu hann tekur næst
hvort harðir norðanvindar blási
og nístí hjarta þitt
hvort ljúfur sunnanblærinn
leiki við þig og tendri elda
eða hvort blási úr austri eða vestri
og allt gengur sinn vanagang.  
jónbjörg
1984 - ...


Ljóð eftir Jónbjörgu

Amma.
Raddir
Fangi ástarinnar.
Minningar.
Bænin hans Sindra
Þú.
Vindar Ástarinnar
Fundin
löngun og þrá