Reiði Mar
Beljandi stormurinn
ýfir upp mar
vekur upp reiði hans
sem sofandi var.
Nú lemur hann frá sér
lætur öldurnar
skella á ströndum og steinum
og rífur upp þar(a).
Hún stendur á klettanös
og starir á
fyllist svo ótta
og hörfar frá.
Óskar sér langt í burt
er hún sér öldur flæða,
óskar sér til Nirvana
þar sem engir vindar næða.
ýfir upp mar
vekur upp reiði hans
sem sofandi var.
Nú lemur hann frá sér
lætur öldurnar
skella á ströndum og steinum
og rífur upp þar(a).
Hún stendur á klettanös
og starir á
fyllist svo ótta
og hörfar frá.
Óskar sér langt í burt
er hún sér öldur flæða,
óskar sér til Nirvana
þar sem engir vindar næða.