Samræður
<b>Hann</b>: Er þetta ekki...
-hik-
óþarfi?

<b>Hún</b>: Jú
-þögn-
þetta er alveg örugglega óþarfi.

<b>Hann</b>: Eigum við...
-hik-
þá nokkuð að vera að þessu?

<b>Hún</b>: Nei
-þögn-
nei ætli það.

Hik...
...þögn

<b>Hik</b>: Eigum við þá ekki að hætta
þessum leikaraskap?

 
Gunnar M. G.
1984 - ...


Ljóð eftir Gunnar M. G.

Í aungvu
Guð: „gleður mig að kynnast þér“
Í andrá
Brekkukotsannáll
Rit um væntumþykju
Í vestrænni myndlist; upphafinn endapuntkur!
Um skynjun
Aðdáun
Af hverju hatið þér Akureyri, Herra Eldon?
Samræður
Ljóðrænar myndir af þér
Píkuvals
Tímaleg ástarjátning
Án titils
Mávafaraldur <i>eða</i> Kynlegir fordómar
Á krossgötum
Öðruvísi brothættur
Lýríken
"...auðvitað er þetta spurning um lífsgæði"
Kvenleikinn minn
Svo langt sem augað eygir