Frétt ,spurning, svar.
Frétt
Litlir tíu ára snáðar
sem ástlaus gatan hafði alið
og hvergi áttu höfði sínu að halla
sendir sem leikföng til sadista
og fóður fyrir vergjarna kerlu hans .
Spurning
Hver bjó um pakkann
lét fylgja með
nýja brúna strigaskó,
græna úlpu frá vetrarhjálp
og blautan kaldan koss
á barnsvanga.
Svar
Heigul pólitísk skipuð smámenni
fóru um stræti og torg
allir skyldu þeir burt.
Burt vestur í afdali
þessir ormar og ótuktir
er væru sem fleinn
í skinhelgri samfélagsmynd
"barna verndar" smámenna.
Litlir tíu ára snáðar
sem ástlaus gatan hafði alið
og hvergi áttu höfði sínu að halla
sendir sem leikföng til sadista
og fóður fyrir vergjarna kerlu hans .
Spurning
Hver bjó um pakkann
lét fylgja með
nýja brúna strigaskó,
græna úlpu frá vetrarhjálp
og blautan kaldan koss
á barnsvanga.
Svar
Heigul pólitísk skipuð smámenni
fóru um stræti og torg
allir skyldu þeir burt.
Burt vestur í afdali
þessir ormar og ótuktir
er væru sem fleinn
í skinhelgri samfélagsmynd
"barna verndar" smámenna.